Sea background
Ígulker

Ígulkerin hafa verið rannsökuð mest skrápdýra við Ísland og eru nokkrar tegundir þekktar. Á grunnslóð, þar með talið í Eyjafirði, eru marígullinn (eða rauðígull, Echinus esculentus) og skollakoppurinn (eða grænígull, Strongylocentrotus droebachiensis) langalgengastir. Marígullinn er rauðleitur að lit og stærri, en skollakoppur er grænleitur á lit og mun algengari.

Skollakoppurinn er algengur við þarajaðarinn rétt neðan fjörumarka en finnst einnig á miklu dýpi. Hann er því ein af fremur fáum lífverum sem þolir mikið dýptarsvið

Yfirleitt er skollakoppur í þaraskógi fremur friðsæl skepna. Hann sniglast um á milli þarastöngla og étur dauðar þarablöðkur eða hræ. Þekkt er hinsvegar að hann getur orðið að plágu ef mikið er af honum. Þá breytist atferlið og hann fer að klifra upp þarastönglana og éta þarann lifandi.

Þetta hefur einmitt gerst í Eyjafirði. Geysimikið er af skollakoppi við þarajaðarinn og étur hann þaraskóginn smám saman og skilur eftir sig eyðimörk. Skollakoppurinn getur svo þraukað á mjög lítilli fæðu í nokkur ár. Nýgræðingurinn nær því ekki að spretta og þaraskógarnir fara ekki að vaxa aftur fyrr en ígulkerin eru öll dauð.

Reglulega hefur verið farið í rannsóknir í Garðsvík rétt utan Svalbarðseyrar þar sem fylgst er með hvernig þarabeltið þynnist eftir því sem ígulkerin sækja fram. Þessa atferlis hefur orðið vart víðs vegar í firðinum og veldur nokkrum áhyggjum, til dæmis vegna þess að fjölmörg dýr, þeirra á meðal þorskseiði, nota þaraskógana sem felustaði. Ef þaraskógarnir hverfa verða þessi smádýr rándýrum auðveld bráð.

Ígulkeraveiðar hófust hér við land árið 1992 og náðu hámarki með 1500 tonnum árið 1994, mest veitt í Breiðafirði og Húnaflóa, en þó einnig talsvert í Eyjafirði. Markaðurinn fyrir ígulkerahrognin hrundi hinsvegar árið 1997 og hafa veiðar lítið verið stundaðar síðan þá. Þó nóg sé af ígulkerum og markaðir hafi náð sér eru þau mjög viðkvæm og vandmeðfarin vara og er það líklega ástæða þess að veiðar hafa ekki náð sér að fullu aftur.

HV

skollakoppur 1-erlendur bogason Skollakoppur að éta niður þaraskóg í Eyjafirði (mynd Erlendur Bogason) Skollakoppur að éta niður þaraskóg í Eyjafirði (mynd Erlendur Bogason)

raudigull-1-erlendur bogason Friðsæll rauðígull á hveratrýtu (mynd Erlendur Bogason) Friðsæll rauðígull á hveratrýtu (mynd Erlendur Bogason)

 


Sjávarútvegsmiðstöðin | Háskólinn á Akureyri | Borgum v./Norðurslóð | IS 600 Akureyri | Sími: +354 460 8900 | fax +354 460 8919 | Tölvupóstur: hreidar(hjá)unak.is

Hönnun / Forritun / Hýsing - ArcticPortal