headBanner10.jpg
Velkomin á vef fishernet.is
  • Arctic Portal
  • AP Community
  • Portlets
  • Arctic Council
  • Science
  • Organizations
  • Maps
  • Library
  • Acronyms
  • Links
  • Search
  • Heim
  • Um okkur
  • Fishernet skýrslur
  • Sögur úr sjávarbyggðum
  • Samfélag
    • Vermannaleikir
    • Konur og sjávarmenning
    • Strandmenning, loftslag og miðlun menningararfs
    • Farandverkafólk
    • Svaðilfarir
    • Strandnytjar
    • Fræðsluferðir
    • Samtíminn
  • Strandmenning
  • Bátar, skip og smíðar
  • Fiskveiðar
  • Sjávarspendýr
  • Grænland og Færeyjar
  • Ströndin
  • Bækur, tímarit & kvikmyndir
  • Ráðstefnur
  • Fréttir og fundir
  • Áhugaverð verkefni
  • Efni úr fjölmiðlum
  • Áhugaverðir tenglar
  • Efnistök
  • Veftré
  • Innskráning
Icelandic(IS)English (United Kingdom)
forum

friendlybanner_logo

fishernet_newsletter_3_logo

Forsíða Samfélag Konur og sjávarmenning
Konur og sjávarmenning
Þær fiska sem róa

Þann 4. mars hélt Helga Katrín Tryggvadóttir fyrirlestur í Víkinni - sjóminjasafni á vegum Íslenska vitafélagsins-félags um íslenska strandmenningu. Þar sagði hún frá rannsókn sem hún gerði fyrir samgönguráðuneytið árið 2008. Markmiðið var að kanna fjölda þeirra kvenna sem sækja sjóinn á Íslandi, starfsaðstæður, upplifun af starfinu og viðhorfum samfélagsins. Hlutfall kvenna af sjómönnum hefur ekki verið og er ekki í dag mjög hátt, en konur á Íslandi hafa þó stundað sjómennsku um aldir. Ekki virðist mikið um mismunun eða fordóma í garð kvenna hérlendis og skýringuna á því hvers vegna konur stunda ekki sjómennsku í meira mæli má vera að finna í menningarlegum normum fremur en ótta við fordóma. Glærur frá fyrirlestrinum birtast hér, en rannsóknina í heild sinni má finna hér á síðunni undir „Vinna kvenna á sjó“

Þær fiska sem róa

 
Róðu betur, kær minn karl

Hér má sjá fyrirlestur sem Ragnhildur Bragadóttir skjalastjóri hjá Biskupsstofu flutti á fundi hjá Félagi um átjándu aldar fræði. Aðalumfjöllunarefni fyrirlestrarins er sjósókn íslenskra kvenna á 18. öld. Meðal þess sem Ragnhildur fjallar um eru kjör og staða þessara kvenna í samfélaginu, aðbúnaður og afkoma þeirra á sjó. Í fyrirlestrinum fjallar Ragnheiður einnig stuttlega um tvær fræknustu kvensjóhetjur 18. aldar, þær Björgu Einarsdóttur og Þuríði Einarsdóttur. 

Róðu betur, kær minn karl

 
„Meykóngur" og þjóðsagnahetja: sagnir og samtímaheimildir um Þuríði Einarsdóttur

Container-ship-bridge_smallSandra Sif Einarsdóttir fjallar í ritgerð sinni frá 2002 um Þuríði Einarsdóttur (1777-1863) sem er ein af fáum íslenskum konum sem gegnt hafa stöðu formanns til sjávar og stundaði róður austan fyrir fjall, frá 11-53 ára aldurs. Þuríður var umdeild kona, þurfti að berjast til að fá sínu fram og átti á stundum í erjum við sveitunga sína en alltaf gekk henni vel á sjónum.

„Meykóngur" og þjóðsagnahetja: sagnir og samtímaheimildir um Þuríði Einarsdóttur

 
Gender Construction and Diversity in Icelandic Fishing Communities

genderconstr_diversity
Grein eftir Unni Dís Skaptadóttur sem birtist í fræðiritinu Anthropologica árið 1996. Hér vefur Unnur saman greiningu á samfélagslegri mótun kynjamisréttis og skoðun á mótun annars konar fjölbreytileika kvenna í litlum sjávarsamfélögum á Íslandi. Slík greiningarleg samþætting er nauðsynleg svo að unnt sé að koma í veg fyrir frosna flokkun á konum í sjávarútvegi.

 Gender Construction and Diversity in Icelandic Fishing Communities

 
Gender Construction at Work in Icelandic Fishplants

fiskvinnsla_small
Grein eftir Unni Dís Skaptadóttur og Guðbjörgu Lindu Rafnsdóttur sem birtist í NORA árið 2000 og fjallar um niðurstöður rannsókna af kynjaðri mótun í fiskverkunarhúsum á Íslandi. Leitast er við að skilja þá ferla sem leiða til kynjunar starfsstétta, starfa, skipulag vinnu og tengsl þar á milli þannig að hægt verði að varpa ljósi á kynjað misrétti, lægri stöðu kvenna á atvinnumarkaði og hvernig kynjaflokkar og sjálfsmyndir eru mótaðar og endurmótaðar innan vinnustaðarins.

Gender Construction at Work in Icelandic Fishplants

 
Fleiri greinar...
  • Women Coping with Change in an Icelandic Fishing Community: A Case Study
  • The Role of Women in the Fisheries Sector
  • Vestfirsk fjölmenning: um menningarlega fjölbreytni í sjávarþorpum
  • Responses to Global Transformations: Gender and Ethnicity in Resource-Based Localities in Iceland
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 3
fishernet.is | Stofnun Vilhjálms Stefánssonar | http://www.svs.is | sími: 460 8980 | bréfsími: 460 8989 | hafa samband