headBanner11.jpg
Velkomin á vef fishernet.is
  • Arctic Portal
  • AP Community
  • Portlets
  • Arctic Council
  • Science
  • Organizations
  • Maps
  • Library
  • Acronyms
  • Links
  • Search
  • Heim
  • Um okkur
  • Fishernet skýrslur
  • Sögur úr sjávarbyggðum
  • Samfélag
  • Strandmenning
  • Bátar, skip og smíðar
  • Fiskveiðar
  • Sjávarspendýr
  • Grænland og Færeyjar
  • Ströndin
  • Bækur, tímarit & kvikmyndir
  • Ráðstefnur
  • Fréttir og fundir
  • Áhugaverð verkefni
  • Efni úr fjölmiðlum
  • Áhugaverðir tenglar
  • Efnistök
  • Veftré
  • Innskráning
Icelandic(IS)English (United Kingdom)
forum

friendlybanner_logo

fishernet_newsletter_3_logo

Forsíða Fréttir og fundir Fréttir og fundir Fréttabréf Trossunnar komið út í annað sinn!
Fréttabréf Trossunnar komið út í annað sinn!

Nú er komið út fréttabréf samevrópska verkefnisins FISHERNET: Fishing Cultural Heritage Network sem Stofnun Vilhjálms Stefánssonar tekur þátt í. Um er að ræða þriggja ára verkefni sem hlotið hefur  styrk frá Menningaráætlun Evrópusambandins en lykilþátttakendur eru Galicia (Spánn), Noregur, Búlgaría, Ísland, Kýpur og Orkneyjar (Bretland). Verkefnið miðar að því að varðveita, miðla og nýta menningararf sem tengist sjósókn, umhverfisþekkingu sjómanna og sérstakri menningu fiskveiðisamfélaga. Framlag  Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar er sérstaklega tengt  fiskveiðimenningu á Íslandi, Grænlandi og Færeyjum. Íslenski hlutinn gengur undir nafninu Trossan og er að finna á vefslóðinni  www.fishernet.is.
fishernet_newsletter_2_logo

Í fréttabréfi
FISHERNET kennir ýmissa grasa frá þátttakendum verkefnisins og má þar nefna umfjöllun um Foldal fiskverksmiðjuna í Finnmark í Noregi sem í dag er notuð sem menningarsetur nokkurs konar þar sem haldnir eru tónleikar, sýningar og hátíðir, en sem einnig er safn og náttstaður fyrir ferðamenn. Sagt er frá aðlögun fiskveiðisamfélaga á Orkneyjum að breyttum tímum og einnig er greint frá ferðum og næsta fundi verkefnisins sem haldinn verður í Reykjavík, á Siglufirði, Húsavík og Akureyri í maí næstkomandi. Hluti af dagskránni er  ráðstefnan  Auður hafs og stranda: Frumkvæði og nýsköpun til nýtingar menningararfs, sem haldin verður á Akureyri þann 7. maí 2010.

Hægt er að nálgast fréttabréfið á heimasíðu Trossunnar  og er þar einnig að finna gagnlegt efni; greinar, ritgerðir og annað efni sem tengist sjávar- og strandmenningu á Íslandi og Norður-Atlantshafi og gæti sem best nýst til rannsókna hvers konar eða skemmtunar.

 
fishernet.is | Stofnun Vilhjálms Stefánssonar | http://www.svs.is | sími: 460 8980 | bréfsími: 460 8989 | hafa samband