Sea background
Brúnþörungar

Brúnþörungarnir (phaeophyta) eru stærstir og mest áberandi af öllum botnþörungum og eru þari og þang, sem við finnum í fjöru og á grunnsævi, yfirleitt að mestum hluta brúnþörungar.

Brúnþörungar eru nánast eingöngu í sjó og þeir geta verið flóknir í byggingu miðað við aðra þörungana. Þeir eru með blöð af ýmsum stærðum og gerðum. Blöðin festast á stilk og getur stilkurinn verið greinóttur. Neðan á stilkinum er þöngulhausinn sem líkist mjög rót háplantna. Eina hlutverk hans er þó að halda þörungnum föstum við botninn. Stundum eru loftfylltar blöðrur á blöðum eða stilk. Hlutverk þeirra eru að halda þörungnum uppréttum í sjónum.

Stórir brúnþörungar mynda svo þaraskóga neðansjávar sem að mörgu leyti svipar til skóga á landi. Líkt og í hefðbundnum skógum þrífast fjölmargar smærri þörungategundir og dýr innan um stórvaxinn þarann eða á þarastöngum og blöðum.

Stærsta þarategund í heimi er risaþarinn (Macrocystis pyrifera) sem finnst eingöngu í Kyrrahafi, hann getur orðið allt að 100 metra hár og vaxið hálfan metra á dag. Þetta mun vera heimsmet í vexti.

Ráðandi brúnþörungategundir í fjöru í Norður - Atlantshafi eru klóþang (Ascophyllum nodosum) og ýmsar tegundir af ættkvíslinni Fucus. Neðan fjöru þar sem botn er harður, eru þaraskógarnir. Þar eru stórvaxnar tegundir af ættkvíslinni Laminaria ráðandi. Helsti munurinn á þeim og fjöruþangi er stór og sver stilkurinn á Laminaria tegundunum.

HV

 

tharaskogur-2-erlendur bogason Séð yfir beltisþaraskóg (mynd Erlendur Bogason) Séð yfir beltisþaraskóg (mynd Erlendur Bogason)

fjruthang-1-bjarni eiriksson Bóluþang á steini (mynd Bjarni Eiríksson) Bóluþang á steini (mynd Bjarni Eiríksson)

 


Sjávarútvegsmiðstöðin | Háskólinn á Akureyri | Borgum v./Norðurslóð | IS 600 Akureyri | Sími: +354 460 8900 | fax +354 460 8919 | Tölvupóstur: hreidar(hjá)unak.is

Hönnun / Forritun / Hýsing - ArcticPortal