headBanner10.jpg
Velkomin á vef fishernet.is
  • Arctic Portal
  • AP Community
  • Portlets
  • Arctic Council
  • Science
  • Organizations
  • Maps
  • Library
  • Acronyms
  • Links
  • Search
  • Heim
  • Um okkur
  • Fishernet skýrslur
  • Sögur úr sjávarbyggðum
  • Samfélag
  • Strandmenning
  • Bátar, skip og smíðar
    • Myndefni
    • Bátaskráning
  • Fiskveiðar
  • Sjávarspendýr
  • Grænland og Færeyjar
  • Ströndin
  • Bækur, tímarit & kvikmyndir
  • Ráðstefnur
  • Fréttir og fundir
  • Áhugaverð verkefni
  • Efni úr fjölmiðlum
  • Áhugaverðir tenglar
  • Efnistök
  • Veftré
  • Innskráning
Icelandic(IS)English (United Kingdom)
forum

friendlybanner_logo

fishernet_newsletter_3_logo

Myndefni
Bátasmíðaverkefni 2009

{vimeo}47095422{/vimeo}

Haustið 2008 hófst samstarf á milli Síldarminjasafnsins á Siglufirði og Bátaverndarmiðstöðvar Norður-Noregs í Gratangen. Markmið verkefnisins var að endurvekja bátasmíði á Siglufirði, miðla þekkingu á milli landanna og læra. Tveir Siglfirðingar, Björn Jónsson trésmiður og Örlygur Kristfinnsson, safnstjóri dvöldu í Gratangen á nokkurra vikna námskeiði í bátasmíði. Ári síðar kom Björn Lillevoll bátasmiður til Siglufjarðar og í samvinnu við Skúla Thoroddsen trésmið Síldrminjasafnsins smíðuðu þeir bát með eyfirska laginu. Farið var í öllum aðalatriðum eftir “Bát Soffíu á Nesi” sem smíðaður var í Slippnum á Siglufirði 1934. Þessi leið er talin heppileg til að endurheimta skipulega forna þekkingu í hefðbundinni bátasmíði. Tveir menn að auki, Björn Jónsson og Sveinn Þorsteinsson, gamalreyndir úr Slippnum, komu einnig að smíði bátsins.

Myndirnar að ofan eru frá smíði Soffíu sumarið 2009.

 

 
Súðbyrðingur - Saga báts

{youtube}LF2zBmGjrWo{/youtube}

Ásdís Thoroddsen kvikmyndagerðamaður gerði myndina Súðbyrðing þegar bátasmiðir tóku sig til og smíðuðu eftirgerð af Staðarskektunni sem fúnað hafði í grasi í Reykhólasveit. Smíði bátsins er rammi frásaganar um þróun súðbyrðings á Norðurlöndum til okkar daga. Frekari upplýsingar um myndina má finna á www.gjola.is. Styttri útgáfa af bátasmíðamyndinni er hér að ofan.

 

 


fishernet.is | Stofnun Vilhjálms Stefánssonar | http://www.svs.is | sími: 460 8980 | bréfsími: 460 8989 | hafa samband