headBanner12.jpg
Velkomin á vef fishernet.is
  • Arctic Portal
  • AP Community
  • Portlets
  • Arctic Council
  • Science
  • Organizations
  • Maps
  • Library
  • Acronyms
  • Links
  • Search
  • Home
  • About
  • Fishernet Country Reports
  • Fishernet Stories
  • Community
  • Coastal Culture
  • Boats & ships
  • Fishing
  • Marine Mammals
  • Greenland & Faroe Islands
  • The coast
  • Books and magazines
  • Conference
  • News & Events
  • Interesting projects
  • Material from mass media
  • Interesting links
  • All tags
  • Webtree
  • Login
Icelandic(IS)English (United Kingdom)
forum

friendlybanner_logo

fishernet_newsletter_3_logo

Home Interesting projects Gull úr greipum Ægis konungs - Grímsstaðavör
Gull úr greipum Ægis konungs - Grímsstaðavör

Gert út frá ADF_2009_16_7_webGrímsstaðavör
Langt fram eftir 20. öldinni var stundað útræði úr vörum á Reykjavíkursvæðinu. Flestar varirnar eru nú horfnar undir uppfyllingar og því fátt sem minnir á þennan þátt í atvinnusögu borgarinnar.

Grímsstaðavör er ein af sjö vörum við Skerjafjörð og sú þeirra sem lengst var róið frá. Betri lending var talin vera í Grímsstaðavör en í öðrum vörum við Skerjafjörðinn, meðal annars vegna skerja fyrir utan sem drógu úr öldunni. Vörin er kennd við bæinn Grímsstaði á Grímsstaðaholti. Grímsstaðaholtið afmarkast af Suðurgötu, Starhaga, Ægisíðu og Hjarðarhaga. Grímur Egilsson reisti sér býli á þessu svæði árið 1842 sem hann nefndi Grímsstaði. Fljótlega var farið að kenna holtið við býlið. Síðasti Grímsstaðabærinn stóð nálægt gatnamótum Dunhaga og Ægisíðu. 

Grímsstaðavörin var þekktust fyrir útgerð grásleppubáta síðustu áratugina, en áður fyrr var ekki síður gert út á þorsk og ýsu. Þegar mest var voru 16 bátar gerðir út frá vörinni. Þrír til fjórir réru alltaf en hinir um helgar eða þegar tími gafst til frá öðru. Tíðarfarið réði því hvaða daga var hægt að róa. Björn Guðjónsson gerði síðastur út  frá Grímsstaðavör, eða allt til ársins 1998.

 
fishernet.is | Stefansson | http://www.svs.is | tel: 460 8980 | fax: 460 8989 | contact